Sá mæti leikari Samuel L. Jackson hefur á ný gengið til liðs við sinn gamla félaga, leikstjórann Spike Lee, og mun fara með lítið en mikilvægt hlutverk í endurgerð Lees á hinni mögnuðu mynd Oldboy.
Jackson lék á sínum tíma í Spike Lee-jónunni Mo' Better Blues og sýndi síðar stórleik í hlutverki dópistans Gator Purify í Jungle Fever. Ekki hefur fengist staðfest hvaða hlutverk er ætlað Jackson í endurgerð Oldboy en talið er að það komi í hans hlut að leika gæslumann aðalpersónunnar, sem Josh Brolin leikur.
Eins og þeir sem þekkja frummyndina vita segir Oldboy frá manni sem er haldið í stofufangelsi í fimmtán ár og þegar hann sleppur fer hann í blóðugan herleiðangur gegn kvalar sínum. Meðal annars með klaufhamar á lofti.