Shia LaBeouf gælir við klámið hjá von Trier

9. ágúst '12 12:36 Shia LaBeouf gælir við klámið hjá von Trier

Leikarinn Shia LaBeouf er í viðræðum um að ganga til liðs við Charlotte Gainsbourg, Stellan Skarsgård og Willem Dafoe í næstu kvikmynd Lars von Triers, Nymphomaniac. Þá hefur Nicole Kidman hefur einnig verið orðuð við myndina.

Nymphomaniac er sögð eiga að vera ljóðræn og léttleikandi saga um erótíska ferð konu, sem Gainsbourg leikur, frá fæðingu til fimmtugs. Sagan er sögð frá sjónarhorni aðalpersónunar, Joe, sem hefur sjálf greint sig sem brókarsjúkan kynlífsfíkil. Skarsgård er hugsaður í hlutverk Joe.

LaBeouf hefur breytt um áherslur í hlutverkavali og hefur horfið frá stórmyndum eins og Transformers-þríleiknum og Indiana Jones and the Kingdom of the Crystal Skull yfir í minni myndir á borð við Lawless og The Company You Keep. Þessi stefnubreyting verður án efa mun áhugaverðari ef hann gengur til liðs von Trier í Nymphomaniac.

Gainsbourg sagði í viðtali við The Guardian að von Trier vilji notast við klámmyndaleikara í grófustu samfarasenunum líkt og hann gerði í Antichrist. „Ég veit ekki hversu langt hann vill að við göngum en ég veit að ég hef mín mörk. Rétt eins og í Antichrist. Ég man að þar bað hann mig um að fróa klámmyndaleikara en ég sagðist ekki treysta mér til þess. Við sjáum svo bara til hvar mörk mín liggja í þessari mynd.“

Tökur á Nymphomaniac byrja í september.

Vignir Jón Vignisson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða