Susanne Bier verðlaunuð á RIFF17. september '12 12:06
Danski kvikmyndaleikstjórinn og óskarsverðlaunahafinn Susanne Bier veitir viðtöku verðlaunum fyrir framúrskarandi listfengi á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík – RIFF í lok mánaðarins. Í tilefni af komu Susanne sýnir hátíðin þrjár mynda hennar, þ.á.m. glænýja mynd – Hárlausa hárskerann (Love is All You Need / Den skaldede frisør) – með Pierce Brosnan og Trine Dyrholm í aðalhlutverkum sem var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum fyrir hálfum mánuði. Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, veitir Susanne verðlaun fyrir framúrskarandi listfengi á Bessastöðum 29. september kl. 17:00. Sama kvöld verður hún viðstödd frumsýninguna á nýjustu mynd sinni, Hárlausa hárskeranum, og svarar spurningum áhorfenda í Háskólabíói. Susanne hefur undraverð tök á því að dansa mitt á milli listar og afþreyingar og það er þessi hæfileiki sem hefur gert hana að eftirsóttum leikstjóra beggja vegna Atlantsála. Kvikmyndir hennar eru hrífandi og merkingarþrungnar og á síðasta ári hlaut hún bæði Golden Globe og Óskarsverðlaun fyrir myndina Hævnen (In a Better World). Áður hafði hún verið tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir myndina Efter bryllupet (After the Wedding) árið 2006. Susanne hefur verið tilnefnd til Bodil verðlaunanna fyrir bestu mynd í Danmörku fimm sinnum og unnið tvisvar, þrisvar til evrópsku kvikmyndaverðlaunanna fyrir bestu leikstjórn og unnið einu sinni, til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs, dómnefndarverðlauna á Sundance og unnið áhorfendaverðlaun þar, og unnið til gagnrýnendaverðlauna á kvikmyndahátíðinni í Toronto svo eitthvað sé talið. Það er því ekki ofsagt að hún sé einhver fremsti kvenleikstjóri heimsins í dag. Susanne er fædd árið 1960 og ólst upp í gyðingafjölskyldu í Kaupmannahöfn. Hún lærði list við hebreska háskólann í Jerúsalem og arkitektúr hjá arkitekafélaginu í Lundúnum áður en hún útskrifaðist frá danska kvikmyndaskólanum árið 1987. Hún sló í gegn í heimalandinu með rómantísku gamanmyndinni Den Eneste Ene (1999) og þremur árum síðar náði dogma-myndin Elsker dig for evigt alþjóðlegri athygli, en þar segir frá pari sem verður fyrir hræðilegu áfalli. Raunar fjalla myndir Susanne oft um fólk sem glímir við erfiðar utanaðkomandi aðstæður. Að hluta til má eflaust rekja þessa tilhneigingu til ættarsögu hennar, en foreldrar hennar flúðu Danmörku eftir hernám nasista. Henni finnst fyrir vikið eins og stríðsátök hafi alltaf vofað yfir henni og í myndum hennar má greina sömu tilfinningu.
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík hefst 27. september. Miðasala er þegar hafin á riff.is.
Hárlausi hárskerinn / Love is all you need / Den skaldede frisør
Vignir Jón Vignisson |
Nýjast
|