Svartur átti sterkan leik í Rotterdam

2. febrúar '12 23:58 Svartur átti sterkan leik í Rotterdam

Íslenska glæpamyndin Svartur á leik var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Rotterdam í gær en þar keppir hún við fjórtán aðrar myndir um Tígurinn, aðalverðlaun hátíðarinnar. Myndin var sýnd fyrir troðfullum sal þar sem áttahundruð áhorfendur biður spenntir eftir að berja hana augum.

Fagnaðarlæti brutust út að myndinni lokinni þar sem aðstandendur voru hylltir ákaflega. Þeir sem hafa tjáð sig um myndina á vef hátíðarinnar fara fögrum orðum um myndina og hún er meðal annars sögð sverja sig í ætt við kvikmyndir Nicolas Winding Refn en hann er einmitt einn framleiðenda myndarinnar.

Svartur á leik er byggð á rómaðri bók Stefáns Mána um undirheima Reykjavíkur. Leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar er Óskar Thor Axelsson og fara Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Jóhannes Haukur Jóhannesson, María Birta og Egill Einarsson með helstu hlutverkin.

Svartur á leik verður frumsýnd hérlendis í mars. Sýnishorn myndarinnar má sjá hér fyrir neðan.

Vignir Jón Vignisson

Engin ummæli hafa verið skráð

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða