Sýnishorn: Alex Cross eltist við óðan raðmorðingja26. júní '12 12:04
Þótt hinn geysivinsæli bandaríski spennusagnahöfundur James Patterson hafi rutt út um tuttugu bókum um hinn eitursnjalla glæpamannagreini og FBI-mann Dr. Alex Cross hafa aðeins þrjár verið kvikmyndaðar. Morgan Freeman reið á vaðið í hlutverki Cross í Kiss the Girls árið 1997 og fylgdi henni eftir með Along Came a Spider, sem var öllu lakari en fyrsta myndin, árið 2001. Tyler Perry (Diary of a Mad Black Woman, Star Trek) hefur tekið við hlutverki Cross af Freeman og aldrei að vita nema myndunum um Cross muni fjölga ef sú nýjasta sem heitir einfaldlega Alex Cross skilar peningum í kassann eftir frumsýningu í nóvember. Fyrstu ljósmyndirnar úr myndinni birtust fyrir mánuði eða svo og nú hefur þeim verið fylgt eftir með fyrsta sýnishorninu þar sem nóg er af sprengingum, sérsveitarmönnum í ham, svífandi þyrlum og almennum látum og hamagangi. Þá tekur þetta sýnishorn af öll tvímæli um að Matthew Fox, sem þekktastur ef fyrir að leika góða lækninn í Lost, er til alls líklegur í hlutverki snarbilaðs raðmorðingja sem Cross eltist við í myndinn. Fox er nánast óþekkjanlegur í hlutverki manns sem er heillaður af sársauka og fær sérlega mikið út úr því að útdeila honum og er jafnvígur með klípitangir, riffla og sprengjuvörður. Sá mæti leikari Edward Burns leikur félaga Cross en lætur ekki mikið fyrir sér fara í treilernum en það sem þar ber fyrir augu bendir eindregið til þess að leikstjórinn Rob Cohen (Fast and the Furiuous) hafi góð tök á öllu sem skiptir mestu máli og ekki ber á öðru en að Alex Cross hafi fengið hjá honum þá adrenalín-sprautu sem hann þarf til þess að halda myndabálkinum gangandi.
Þórarinn Þórarinsson |
Nýjast
|