Sýnishorn: Eastwood mætir aftur til leiks í Trouble with the Curve

8. ágúst '12 12:37 Sýnishorn: Eastwood mætir aftur til leiks í Trouble with the Curve

Clint Eastwood snýr aftur til leiks eftir fjögurra ára hlé frá kvikmyndaleik í íþróttamyndinni Troube with the Curve. Þetta er fyrsta kvikmynd hans í tuttugu ár þar sem hann fer með aðalhlutverkið en leikstýrir ekki. Sýnishorn fyrir myndina má sjá hér fyrir neðan.

Í Trouble with the Curve fer Eastwood með hlutverk útsendara hafnarboltafélags sem ætlar að leggja í sína síðustu ferð, þvert yfir Bandaríkin, í leit að góðum leikmönnum. Hann leitar til dóttur sinnar eftir hjálp þar sem hann er farinn að missa sjónina, og hún samþykkir að vera augu hans og eyru á ferðalaginu. Í öðrum hlutverkum eru Amy Adams, Matthew Lillard, John Goodman og Justin Timberlake.

Eastwood fór síðast með aðalhlutverkið í Gran Torino og sýndi eftirminnilegan leik í því sem átti að vera síðasta hlutverk hans. Hann hefur þó verið iðinn fyrir aftan tökuvélina og leikstýrði síðast myndunum J. Edgar og Hereafter og þar áður Invictus.

Robert Lorenz, sem hefur verið framleiðandi Eastwoods í mörg ár, leikstýrir myndinni sem þeir félagar framleiða í sameiningu.

Trouble with the Cruve verður frumsýnd 21. september í Bandaríkjunum og er væntanleg til Íslands síðar í haust.

Vignir Jón Vignisson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða