Sýnishorn: Hardy og LaBeouf eru bruggarar í Lawless

22. ágúst '12 13:37 Sýnishorn: Hardy og LaBeouf eru bruggarar í Lawless

Spennumyndin Lawless vakti mikla lukku á kvikmyndahátíðinni í Cannes á árinu. Í henni fara Tom Hardy og Shia LaBeouf  með hlutverk bræðra sem stunda brugg á bannárunum. Nú hefur nýtt sýnishorn úr myndinni litið dagsins ljós og má sjá það hér fyrir neðan.

Leikstjóri myndarinnar er John Hillcoat sem gerði hina þrælgóðu The Proposition og The Road. Lawless segir frá hópi bruggara í Virginíu, með bræður í broddi fylkingar, sem bregst við ofbeldisaðgerðum lögreglunnar með því að gjalda yfirvaldinu í sömu mynt.

Í öðrum hlutverkum eru Guy Pearce, Jason Clarke, Jessica Chastain, Mia Wasikowska og Gary Oldman. Tónlistamaðurinn Nick Cave skrifar handritið en hann skrifaði meðal annars The Proposition.

Lawless verður vonandi frumsýnd á Íslandi á árinu.



Vignir Jón Vignisson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða