Sýnishorn og plakat fyrir kung fu-myndina The Man with the Iron Fists hafa litið dagsins ljós eins og sjá má hér fyrir neðan.
Rappstjarnan RZA leikstýrir og skrifar handritið ásamt Eli Roth. Þá kynnir sjálfur Quentin Tarantino myndina en hann og RZA unnu saman á sínum tíma einu frumsömdu stefin sem hljómuðu í Kill Bill Vol. 1.
The Man with the Iron Fists fjallar um járnsmið í Kína sem þarf að vera þorpið sitt gegn ásókn sjö gengja sem hyggjast sölsa þorpið undir sig.
RZA er yfirlýstur kung fu-nörd og hann segir myndina vera óð til allra þeirra mynda sem hafa veitt honum innblástur í gegnum árin. RZA, Russell Crowe, Jamie Chung, Lucy Liu og Pam Grier eru í helstu hlutverkum.
RZA, sem er þekktastur fyrir að hafa stofnað Wu-Tang Clan, fer með hlutverk í Django Unchained sem Tarantino leikstýrir. Þá fór hann einnig gestahlutverk í nýjustu seríunni af Californication.
Universal dreifir The Man with the Iron Fists og hún er væntanleg í bíó á árinu.