Teymið bakvið Óskarsverðlaunamyndina The Hurt Locker, Leikstjórinn Kathryn Bigelow og handritshöfundurinn Mark Boal, hafa sameinað krafta sýna að nýju í Zero Dark Thirty sem fjallar um hópinn sem elti uppi og drap Osama bin Laden. Fyrsta sýnishornið úr myndinni má sjá hér fyrir neðan.
Myndin á að teygja sig yfir nokkur ár og leiða áhorfendur í gegnum það helsta sem gekk á í hinni miklu leit að Osama sem tók ein ellefu ár þar til honum var í hel komið. SEAL 6-teymið, sem að lokum fann Osama og felldi, kom þó að málinu fyrr en á seinni hluta leitarinnar. Verkefnið hefur fengið mikla athygli vestanhafs og hóf Pentagon rannsókn á því hvernig Bigelow og Boal komust yfir leynilegar upplýsingar, sem eru í handritinu, varðandi SEAL 6-hópinn.
Leikhópur myndarinnar er ekki af verri endanum; Jason Clarke, Chris Pratt, Joel Edgerton, Jessica Chastain, Mark Strong, Edgar Ramirez, Kyle Chandler, Nash Edgerton, Jennifer Ehle, Harold Perrineau Jr., Fares Fares og Mark Duplass.
Zero Dark Thirty er væntanleg vestanhafs 19. desember.