Sýnishorn: Ofursvalur Spider-Man næsta sumar

7. febrúar '12 08:59 Sýnishorn: Ofursvalur Spider-Man næsta sumar

Nýtt sýnishorn fyrir hina væntanlegu The Amazing Spider-Man var afhjúpað á veraldarvefnum fyrir örfáum mínútum. Hér er um að ræða endurræsingu (e. reboot) á Spider-Man myndunum með nýjum leikstjóra, nýrri nálgun og nýjum leikurum.

Leikstjóri myndarinnar er Marc Webb, sem áður leikstýrði 500 Days of Summer, og er það Andrew Garfield sem fer nú með hlutverk hins lipra Spider-Man. Í öðrum hlutverkum eru Emma Stone, Rhys Ifans, Denis Leary, Martin Sheen og Sally Field.

Sýnishornið má sjá hér fyrir neðan. The Amazing Spider-Man verður frumsýnd hérlendis 6. júlí.

Vignir Jón Vignisson

Engin ummæli hafa verið skráð

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða