Sýnishorn: Pitt vinnur fyrir mafíuna í Killing Them Softly

2. ágúst '12 13:15 Sýnishorn: Pitt vinnur fyrir mafíuna í Killing Them Softly

Ein af þeim kvikmyndum sem kepptu um Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í ár var spennumyndin Killing Them Softly með Brad Pitt, Richard Jenkins og Ray Liotta í aðalhlutverkunum. Nú hefur myndin fengið sýnishorn og plakat sem sjá má hér fyrir neðan.

Leikstjóri Killing Them Sofly er Andrew Dominik sem leikstýrði áður költ-myndinni Chopper og The Assassination of Jesse James by the Coward Robert Ford þar sem hann vann áður með Pitt. Killing, sem hét áður Cogan's Trade, segir frá handrukkara sem er að rannsaka rán sem átti sér stað í pókerleik vernduðum af mafíunni. Myndin er byggð á samnefndri sögu George V. Higgins.

Í öðrum hlutverkum í myndinni eru James Gandolfini, Sam Shepard, Scoot McNairy og Ben Mendelsohn.

Killing Them Softly verður frumsýnd 28. september hérlendis.



Vignir Jón Vignisson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða