Sýnishorn: Renner er fantur í The Bourne Legacy

8. febrúar '12 21:08 Sýnishorn: Renner er fantur í The Bourne Legacy

Sýnishorn fyrir næsta innslagið í Bourne-bálknum, The Bourne Legacy, var afhjúpað fyrr í kvöld og má nú sjá það hér fyrir neðan. Leikarinn Matt Damon stimplaði sig inn sem fyrsta flokks hasarmyndaleikari með frammistöðu sinni í Bourne-þríleiknum; The Bourne Identity, The Bourne Supremacy og The Bourne Ultimatum.

Nú er þeim þríleik lokið og hefur Jeremy Renner tekið við kyndlinum sem aðalhetja nýrrar myndaseríu sem hefst með The Bourne Legacy. Sögusviðið er það sama og áður og hin dularfulla stofnun Treadstone er enn í miðju atburðarásarinnar. „Takturinn er sá sami en þetta er nýtt prógramm með nýjum persónum,“ sagði Renner í viðtali við kvikmyndaritið Empire. „Það er enginn að skipta Damon út. Hér er bara ný hetja í nýjum kafla... Auðveldast er að horfa á þetta sem framlengingu á seríunni. Jason Bourne verður ekki í myndinni en hann er svo sannalega lifandi.“

Leikstjóri myndarinnar er Tony Gilroy, sem skrifaði meðal annars fyrri myndirnar, og snúa margir leikarar úr fyrri myndum aftur; Albert Finney, Joan Allen, David Strathairn og Scott Glenn sem starfsmenn Treadstone. Einnig eru Rachel Weisz, Edward Norton og Oscar Isaac í stórum hlutverkum.

The Bourne Legacy verður frumsýnd vestanhafs 3. ágúst.

 

Vignir Jón Vignisson

Engin ummæli hafa verið skráð

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða