Sýnishorn: Schwarzenegger rústar liðinu í The Last Stand
16. ágúst '12 19:36
Um helgina verður The Expendables 2 frumsýnd vestanhafs þar sem markar endurkomu hasarhetjunnar Arnolds Schwarzenegger til kvikmyndaheimsins eftir níu ára fjarveru*. Á undan myndinni vestanhafs verður sýnishorn fyrir hasarmyndina The Last Stand þar sem Schwarzenegger fer með aðalhlutverkið, og má nú sjá sýnishornið og plakatið fyrir myndina hér fyrir neðan.
Í The Last Stand leikur Schwarzenegger aldraða lögreglustjóra í smábæ sem liggur við landamæri Mexíkó. Stórhættulegur og umsvifamikill eiturlyfjabarón, á flótta undan alríkislögreglunni, ætlar að stytta sér leið til Mexíkó með að fara í gegnum bæinn, og lögreglustjórinn og teymi hans það eina sem stendur í vegi hans.
Leikstjóri myndarinnar er Kim Jee-woon sem leikstýrði meðal annars The Good, the Bad and the Weird og A Bittersweet Life en The Last Stand er sú fyrsta sem hann gerir á ensku. Í öðrum hlutverkum í myndinni eru Jaimie Alexander, Forest Whitaker, Peter Stormare, Johnny Knoxville, Luis Guzmán og Rodrigo Santoro.
* = að vísu fór hann með gestahlutverk í The Expendables, Around the World in 80 Days og The Rundown.