Sýnishorn: Skrímslin snúa aftur í Monsters University

21. júní '12 12:25 Sýnishorn: Skrímslin snúa aftur í Monsters University

Vinirnir Mike og Sully úr Monsters Inc, snúa aftur í Monsters University á næsta ári og má nú sjá fyrsta sýnishornið úr myndinni hér fyrir neðan.

Monsters University segir frá ævintýrum þeirra félaga, Mike og Sully, þegar þeir voru fyrst að læra að vera hrekkjulómar og gengu í sérstakan skóla til þess að læra réttu taktana.

Leikstjóri myndarinnar er Dan Scanlon sem áður starfaði sem annar leikstjóri stuttmyndarinnar Mater and the Ghostlight fyrir Pixar. Billy Crystal og John Goodman ljá þeim félögum raddir sínar og eru Steve Buscemi, Ken Jeong, Kelsey Grammer og Frank Oz í öðrum hlutverkum.

Monsters University verður frumsýnd næsta sumar.

Vignir Jón Vignisson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða