Sýnishorn: Sly drepur mann og annan í Bullet to the Head

17. ágúst '12 08:56 Sýnishorn: Sly drepur mann og annan í Bullet to the Head

Fyrsta sýnishornið úr hasarmyndinni Bullet to the Head með Sylvester Stallone var frumsýnt í nótt og má nú sjá hér fyrir neðan. Í gærkvöldi birtum við sýnishornið fyrir nýjustu kvikmynd Arnolds Schwarzeneggers, The Last Stand, sem má sjá hér.

Walter Hill leikstýrir Bullet to the Head sem segir frá leigumorðingja sem gengur til liðs við lögreglumann í þeim tilgangi að handsama morðingja félaga þeirra. Auk Sly fara Jason Momoa, Sung Kang, Christian Slater og Sarah Shahi með helstu hlutverk.

Upphaflega stóð til að Wayne Kramer leikstýrði myndinni og réð hann Thomas Jane til þess að fara með annað aðalhlutverkanna. Þegar Kramer yfirgaf verkefnið stakk Jane upp á því að Sly myndi hafa samband við gömlu hasarkempuna Walter Hill. Þegar Hill tók að sér leikstjórnina þá var framleiðandinn Joel Silver fenginn með í hópinn en því miður gerði hann það að sínu fyrsta verki að reka Jane og ráða Kang í hans stað.

Bullet to the Head verður frumsýnd 1. febrúar 2013.

Vignir Jón Vignisson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða