Magnað nýtt sýnishorn fyrir stórmyndina The Dark Knight Rises var afhjúpað í morgun af Warner Bros og má sjá hér fyrir neðan. Í þessu þriðja sýnishorni úr myndinni er áhersla lögð á skúrk myndarinnar, Bane, leikinn af Tom Hardy. Sýnishornið er jafnframt það síðasta sem gefið verður út áður en myndin er frumsýnd í sumar.
„Hann er hryðjuverkamaður, bæði hvað hugarfar hans varðar og ruddalegar gjörðir hans. Þannig að hann er hryllilegur. Virkilega hrottalegt fyrirbæri,“ segir Hardy um Bane en The Dark Knight Rises er þriðja og jafnframt síðusta Batman-mynd Christophers Nolan. Nolan segir Bane vera allt öðruvísi illmenni en Batman hafi áður tekist á við í myndum sínum. „Hann er meiriháttar bíóskrímsli en ótrúlega gáfaður og það er hlið á honum sem hefur ekki sést áður,“ segir Nolan og bætir við að Bane sé því verðugur andstæðingur Leðurblökumannsins.
Christian Bale, Michael Caine, Gary Oldman og Morgan Freeman eru í sömu hlutverkum og í fyrri myndunum tveimur en auk Hardy mæta þau Anne Hathaway, Marion Cotillard og Joseph Gordon-Levitt ný til leiks. Cotillard og Gordon-Levitt eiga það svo sameiginlegt með Hardy að hafa gert það virkilega gott í Inception.