Sýnishorn: Vampíruveiðarinn blóðugi Abraham Lincoln

25. maí '12 11:42 Sýnishorn: Vampíruveiðarinn blóðugi Abraham Lincoln

Nýtt sýnishorn úr kvikmyndinni Abraham Lincoln: Vampire Hunter var frumsýnt í nótt og má nú sjá það hér fyrir neðan. Athugið að sýnishornið er töluvert blóðugra en gerist og gengur.

Í Abraham Lincoln: Vampire Hunter er leikið með þá hugmynd að forsetinn dáði hafi verið vampíruveiðari með meiru. Í barnæsku hafi hann horft á móður drepna af slíkum verum og að hann hafi svarið þess dýran eið að ná fram hefndum.

Rússneski leikstjórinn Timur Bekmambetov sem áður gerði Night Watch, Day Watch og Wanted, leikstýrir og enginn annar en Tim Burton framleiðir. Í helstu hlutverkum eru Benjamin Walker, Mary Elizabeth Winstead og Dominic Cooper.

Abraham Lincoln: Vampire Hunter verður frumsýnd hérlendis 18. júlí.

Vignir Jón Vignisson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða