Sýnishorn: Vélbyssurnar tala sínu máli í Gangster Squad

10. maí '12 11:38 Sýnishorn: Vélbyssurnar tala sínu máli í Gangster Squad

Fyrsta sýnishornið úr glæpamyndinni Gangster Squad var frumsýnt í nótt og má sjá það hér að neðan.

Einvala lið leikara er í myndinni með Ryan Gosling, Josh Brolin, Emmu Stone og Sean Penn í fremstu víglínu. Leikstjóri myndarinnar er Ruben Fleischer sem hefur meðal annars leikstýrt gamanmyndunum Zombieland og 30:Minutes or Less. Í öðrum hlutverkum eru ekki ómerkari menn en Giovanni Ribisi, Nick Nolte, Michael Pena, Robert Patrick og Anthony Mackie.

Gangster Squad gerist á fimmta áratugnum í Los Angeles þegar glæpakóngurinn Mickey Cohen, sem drottnar yfir austurströnd Bandaríkjanna, ætlar sér að hreiðra um sig meðal stjarnanna í Hollywood.  Hópi lögreglumanna er fengið það verkefni að halda aftur af Cohen en það reynist hægara sagt en gert þar sem Cohen er með vænan slatta af stjórnmálamönnum í vasanum.

Sýnishornið bendir til þess að stíll myndarinnar sé svo sannarlega öðruvísi en gengur og gerist í myndum um menn af sauðahúsi Cohens enda er valið á Fleischer sem leikstjóra óneitanlega dálítið sérstakt þar sem um gangster-mynd er að ræða. Forsmekkurinn bendir til þess að útkoman verði mögnuð og það verður áhugavert að sjá hvernig Fleischer afgreiðir krimma horfinna tíma.

Gangster Squad verður frumsýnd seinna á árinu.

Vignir Jón Vignisson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða