Sýnishorn: Willem Dafoe veiðir tígrisdýr í The Hunter

3. febrúar '12 09:03 Sýnishorn: Willem Dafoe veiðir tígrisdýr í The Hunter

Sýnishornið fyrir nýjustu kvikmynd Willems Dafoe, The Hunter, birtist fyrr í vikunni á veraldarvefnum. Í kvikmyndinni fer Dafoe með hlutverk málaliða sem lyfjafyrirtæki fær til þess að leita uppi tígrisdýr í Tasmaníu. Tígisdýrið var áður talið vera útdautt og er honum falið það verkefni að fella það og safna allskyns sýnum fyrir vinnuveitanda sinn. Þegar til Tasmaníu er komið fær hann aðstoð frá leiðsögumanni, sem Sam Neill leikur, og kemst að því að hann er ekki sá fyrsti sem lyfjafyrirtækið fær í verkið og hægt og bítandi áttar hann sig á því að ekki er allt með felldu.

The Hunter verður frumsýnd í apríl vestanhafs og er óljóst hvort eða hvenær hún berst til Ísland.

Vignir Jón Vignisson

Engin ummæli hafa verið skráð

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða