Eins og við var að búast stóðust íslenskir bíógestir ekki aðdráttarafl Iron Man, Captain America, Þórs, Hulk og félaga þeirra þegar The Avengers var frumsýnd í þrettán bíósölum um helgina. Hetjurnar seldu miða fyrir 17.6 milljónir króna um helgina og rúmlega 14 þúsund manns fóru í bíó til þess að sjá þessa mögnuðu ofurhetjumynd sem beðið hefur verið eftir með mikilli eftirvæntingu.
Marvel-hetjurnar slógu þar með tíu ára gamal aðsóknarmet á frumsýningarhelgi og steyptu sjálfum Harry Potter af stóli en hann tryggði sér metið með Harry Potter og leyniklefanum.
The Avengers verður ekki frumsýnd í Bandaríkjunum fyrr en á föstudaginn en fólk í 39 öðrum löndum fékk forskot á sæluna nú um helgina.