Tom Cruise er upplagður fyrir Reacher

29. júní '12 12:36 Tom Cruise er upplagður fyrir Reacher

Kvikmyndatímaritið Empire gerir Jack Reacher-myndinni skil í nýjasta tölublaði sínu og birtir mynd af Tom Cruise í hlutverki þessarar dáðu skáldsagnapersónu. Aðdáendur Reachers hafa lengi beðið eftir því að þessi tröllvaxni, réttsýni og miskunnarlausi flækingur og fyrrverandi herlögreglumaður kæmi á hvíta tjaldið en aldrei þessu vant er hæpið að tala um að myndarinnar sé beðið með eftirvæntingu. Í það minnsta ekki með jákvæðum formerkjum þar sem þeir sem þekkja Reacher úr bókum Lee Child geta ómögulega séð Cruise fyrir sér í hlutverkinu. Óánægjuraddir frussuðust fram á netinu þegar ljóst varð að Cruise myndi leika Reacher í fyrstu myndinni um hetjuna sem gerð er eftir níundu Reacher-bók Child, One Shot.

Christopher McQuarrie, leikstjóri Jack Reacher, deilir þessum áhyggjum ekki og segir við Empire að Cruise sé akkúrat rétti maðurinn til að leika slagsmálahundinn. „Fólk er að rugla saman persónunni og persónueinkennum. Það sem dró mig að Reacher og er það sem heillar mig við hann er hugur hans. Tom er mjög aðlaðandi og gjörsamlega óstöðvandi og þannig er Jack Reacher einmitt fyrir mér.“

Þegar talið berst að valinu á þeirri Reacher-sögu sem ákveðið var að kvikmynda segir McQuarrie: „One Shot er eina sagan sem byrjar áður en Reacher birtist. Hann er í raun horfinn og lifir lífi sínu ósýnilegur. Hann er með tannbursta, vegabréf og handfylli af seðlum í fórum sínum. Meira er það ekki. Hvernig þetta val hans á lífsstíl fléttast saman við plottið í One Shot gerði hana að heppilegustu sögunni til þess að kynna persónuna til leiks.“   

Þórarinn Þórarinsson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða