Toppfimm: Bestu pókermyndirnar

21. júní '12 11:20 Toppfimm: Bestu pókermyndirnar

Pókerspilun og áhugi á fjárhættuspilinu tók fjörkipp úti í heimi fyrir nokkrum árum og keppnir í þessu sporti sem gengur ekki síst út að geta haldið fési við borðið urðu meira áberandi. Þessi iðja sem löngum hefur verið stunduð í reykfylltum bakherbergjum skemmtistaða færðist fram í sviðsljósið og pókerstaðir tóku meira segja að skjóta upp kollinum hér og þar á Íslandi.
Sumir telja að James Bond-myndin, Casino Royale, frá 2006 hafi haft afgerandi áhrif á aukinn pókeráhuga almennings en þeir sem vilja horfa á áhrif kvikmynda í þessu sambandi geta horft enn lengra aftur. Til ársins 1998 og kvikmyndarinnar Rounders en margir af fremstu spilurum heims segja myndina hafa kveikt áhuga þeirra.

Að þessu sinni tekur Svarthöfði saman í toppfimm bestu pókermyndirnar.

5.
Lucky You (2004)
Tegund pókers: Texas Hold 'em
Lucky You er hugsanlega sísta myndin á listanum en samt sem áður áhugaverð mynd um heim pókerspilarans. Curtis Hanson (L.A. Confidential, Wonder Boys) leikstýrir handriti eftir sjálfan sig og Eric Roth (The Insider, Munich, Forrest Gump). Rétt eins og í Rounders opnast sýn í heim spilarans og hversu heltekinn hann er verður af köllun sinni, pókernum. Eric Bana er góður ásamt Robert Duvall en þeir leika pókerfeðga og keppinauta. Óskiljanleg framvinda og skortur á innsæi í samband Bana og Drew Barrymore dregur þó myndina töluvert niður. Þá kemur Robert Downey Jr. fram í stuttu en góðu hlutverki.


4.
California Split (1974)
Tegund pókers: Five-Card Draw
Robert Altman leikstýrir hér nokkura daga spilatörn nýju vinanna Bill og Charlie sem George Segal og Elliot Gould leika. Hér er tekið fyrir hversu hverfull heimur spilarans getur verið og hvernig fíkninn tekur sér bólfestu og skilur eftir sviðna jörð. Dagur verður að nóttu og nótt verður að degi í nafni spilamennskunnar. Segal er óborganlegur í hlutverki Bills sem sekkur dýpra og dýpra með hjálp Charlies.


3.
The Cincinnati Kid (1965)
Tegund pókers: Five-Card Stud
Goðsögnin Steve McQueen var mikill pókerspilari og þótti því viðeigandi að hann tæki að sér hlutverk upprennandi pókerspilara sem ætlar að komast á toppinn. Gamli gangsterinn, Edward G. Robinson, fer með hlutverk sitjandi meistara til margra ára sem Cincinnati-strákurinn ætlar að sigra og gott betur.


2.
Maverick (1994)
Tegund pókers: Five-Card Draw
Maverick er sú mynd sem undirritaður hefur séð oftast af þeim sem taldar eru upp á listanum. Mel Gibson neglir hlutverk hins spilaglaða Maverick sem James Garner hafði þremur áratugum áður gert frægan í samnefndum sjónvarpsþáttum. Garner leikur einmitt eitt aðalhlutverkið hér ásamt Jodie Foster. Gauragangur, póker, hasar og grín í fyrirrúmi í þessari frábæru mynd. Richard Donner (Lethal Weapon 1-4, Superman) leikstýrir.


1.
Rounders (1998)
Tegund póker: Texas Hold 'em
Rounders er sögð hafa hrist upp í pókerheiminum og gott betur en það. Margir af helstu yngri spilurum dagsins í dag hafa talað um að Rounders hafi kveikt áhuga þeirra á spilamennsku. John Dahl leikstýrir Matt Damon, ferskum eftir vandaðan og góðan leik í A Good Will Hunting, Edward Norton og John Malkovich, með mest pirrandi hreim í heimi. Myndin gerir spilamennsku góð skil og gerir bæði reglum og pókerhugsun góð skil. Áhorfendur sökkva dýpra og dýpra með Damon þangað til að hann rekst á botninn, tekur sig saman í andlitinu og vinnur sig upp á við.

Hvaða pókermyndir finnst þér bestar?

Vignir Jón Vignisson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða