Tveir vinir og báðir jafn klikkaðir

16. apríl '12 16:45 Tveir vinir og báðir jafn klikkaðir

Sumar ljósmyndir segja meira en þúsund orð og sú sem er hér meðfylgjandi gerir það vonandi vegna þess að ekki er mikið um hana að segja annað en að þarna sjást tveir flottustu erkitöffarar kvikmyndanna eins og algerir fábjánar á förnum vegi í Los Angeles.

Þeir Al Pacino og Christopher Walken eru alla jafna mun svalari en þeir eru þarna og einhverjum gæti jafnvel dottið til hugar að þeir væru pöddufullir úti í góða veðrinu. Myndin er hins vegar tekin á tökustað myndarinnar Stand Up Guys, sem er væntanleg í bíó á næsta ári.

Þar eru leika harðjaxlarnir tvo gamla svikahrappa sem eru löngu komnir af léttasta skeiði en reyna að smala saman gamla genginu sínu í eitt glæsilegt lokaverkefni áður en einn þeirra tekur að sér sitt síðasta verk sem er að kála félaga sínum.

Hljómar steikt, en áhugavert og myndin sem The Huffington Post birti í dag lofar góðu.
 

Þórarinn Þórarinsson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða