Leikstjórinn Darren Aronofsky er um þessar mundir á kafi í undirbúningsvinnu fyrir sína næstu kvikmynd, biblíumyndina Noah sem að vitaskuld fjallar um örkina hans Nóa, og er talið að myndin verði tekin upp hérlendis. Noah er dýrasta verkefni sem Aronofsky hefur komið nálægt en kostnaður myndarinnar er hátt í 100 milljónir dala.
Upprunalega átti Christian Bale að fara með titilhlutverk myndarinnar en tökuáætlun á næstu kvikmynd Terrance Malick kom í veg fyrir hans þátttöku. Horft var síðan til Michael Fassbender en einhverra hluta vegna gekk það ekki upp og nú er Russell Crowe orðaður við hlutverkið. Aronofsky er einnig sagður vera á höttunum á eftir Liam Neeson í ónefnt hlutverk. Talið að hann vilji Neeson í hlutverk skúrk myndarinnar.
Handrit myndarinnar var nýlega endurskrifað af John Logan en það er byggt á smásögu sem Aronofsky gerði þegar hann var unglingur og var verðlaunaður fyrir. Fréttablaðið greindi fyrst frá því að Aronofsky hafi komið til Íslands í tvígang í þeim tilgangi að skoða hugsanlega tökustaði fyrir myndina. Enn hefur ekki fengist staðfest hvort Noah verði tekin upp hérlendis en þykir mjög líklegt að það verði tilkynnt á næstu vikum þar sem tökur eiga að hefjast í sumar.
Engin ummæli hafa verið skráð