Verður Travolta The Toxic Avenger?

27. ágúst '12 09:00 Verður Travolta The Toxic Avenger?

Sá stórfurðulegi orðrómur hefur fengið vængi í Hollywood að John Travolta sé líklegur til þess að leika hina vægast sagt sorglegu ofurhetju The Toxic Avenger. Toxic Avenger, eða Toxie, hefur látið til sín taka í myndum hins klikkaða jaðarhóps Troma sem lýtur stjórn furðufuglsins Lloyd Kaufman.

Myndir Troma eru snargeggjaðar, illa leiknar og gerðar fyrir lítinn pening en hafa ákveðinn „cult status“ í ákveðnum kreðsum og samfélagsgagnrýni þeirra er oft á tíðum mjög markviss. En samt hlýtur fólk að spyrja sig hvert ferill Travolta sé kominn ef hann íhugar í alvöru að leika Toxie.  
 
Vefurinn It's On The Grid, sem þykir áreiðanlegur, greindi fyrst frá þessu þannig að sagan virðist ekki alveg úr lausu lofti gripin. Tvö ár eru liðin frá því tilkynnt var um áform um að endurgera The Toxic Avenger en til stendur að leikstjóri Hot Tub Time Machine,  Steve Pink, leikstýri myndinni eftir handriti sem hann skrifaði með Daniel C. Mitchell
 
Toxie-myndir Troma eru frekar subbulegir splatterar en eins undarlega og það hljómar stendur til að gera Toxie að fjölskylduvænni hetju sem hefur umhverfisvæn sjónarmið í hávegum í léttri grínspennu. Troma-myndirnar um Toxie eru fjórar auk þess sem hetjan hefur fengi að láta ljós sitt skína í teiknimyndum og myndasögum. 
 
The Toxic Avenger er eitt frægasta sköpunarverk Troma en hann er óhefðbundin ofurhetja sem verður til þegar nördinn og húsvörðurinn Melvin Junko dettur í ker fullt af eiturefnaúrgangi, rís upp sem viðbjóðslega útlítandi hetja sem snýr vörn í sókn og berst gegn glæpum og eineltispúkum.
 
Undirritaður ræddi við Lloyd Kaufman um Toxie fyrir nokkrum árum. Hann sagði engann hafa kært sig um að sýna Toxic Avenger þegar hún var tilbúin á sínum tíma vegna þess að fólk áttaði sig ekki á að um satíru væri að ræða. „Satíran er okkar fag og við erum alltaf að fást við félagsleg ágreiningsefni. Við byrjuðum á því að blanda saman gríni og kynlífi í nokkrum myndum en það tíðkaðist ekki þá. Við gerðum það og það gekk vel þannig að Hollywodd hermdi eftir okkur með Animal House, Porky´s og fleiru í þeim dúr. Þeir brutu bara reglurnar með því að nota góða leikara og góð handrit. Við ákváðum því að hætta þessu og leita nýrra viðfangsefna.“ 
 
Og þá kom hryllingurinn og Toxic Avenger. „Við lásum í Hollywood Reporter eða einhverju álíka blaði að hryllingsmyndin væri ekki gjaldgeng lengur og sögðum við sjálfa okkur: „A-ha!, ef þetta er satt þá förum við út í hrylling,“  einfaldlega vegna þess að okkur hafði gengið vel að fara gegn sérfræðiáliti. Ég get talað endalaust um Toxic Avenger; þetta er mjög flókið og djúpt verkefni en líka mjög skemmtilegt og sló í gegn.“ 
 
Þar sem hvorki hefur gengið né rekið í tvö ár að fjármagna þessa undarlegu endurgerð er alls óvíst hvort Toxie eigi eftir að birtast í nýju umhverfi en óneitanlega yrði fróðlegt að sjá John Travolta spreyta sig á Melvin Junko.
 
Þórarinn Þórarinsson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða