Hinn virti auglýsingaleikstjóri Adam Berg er í samningaviðræðum um að endurgera hryllingssýruna Videodrome sem meistari David Cronenberg gerði árið 1983 með James Woods í aðalhlutverkinu. Náist samningar verður Videodrome-endurgerðin fyrsta kvikmynd Bergs í fullri lengd og hann ræðst þá svo sannarlega ekki á garðinn þar sem hann lægstur.
Í upprunalegu myndinni lék James Woods yfirmann hjá sjónvarpsstöðinni Civic TV Channel 83 sem kemur stöðinni á kortið með þáttunum Videodrome sem dáleiða áhorfendur með því að sýna pyntingar og morð. Hugmyndin er að blanda möguleikum nanó-tækni inn í gamla söguþráðinn, uppfæra söguna og sprengja hana út í risavaxinn vísindatrylli.