ZikZak framleiðir Z for Zachariah í Hollywood

15. ágúst '12 13:41 ZikZak framleiðir Z for Zachariah í Hollywood

Strákarnir hjá ZikZak, þeir Skúli Malmquist og Þór Sigurjónsson, munu sameina krafta sína með leikaranum og framleiðendanum Tobey Maguire við framleiðslu á kvikmyndinni Z for Zachariah eftir handriti Nissar Modi. Handritið er byggt á samnefndri bók eftir Robert C. O'Brian frá 1973. Kvikmyndabiblían Variety greinir frá þessu.

"Handritið hefur gengið manna á milli í Hollywood og fengið gífurlega góð viðbrögð, en það hefur verið í þróun hjá Zik Zak síðan á fyrri hluta síðasta áratugar,“ segir Otto Geir Borg, þróunarstjóri framleiðslu hjá ZikZak, í samtali við Svarthöfða.

Leikstjóri myndarinnar er Graig Zobel sem vakið hefur eftirtekt vestanhafs fyrir leikstjórn og handrit sitt að kvikmyndinni Compliance sem verður frumsýnd í Bandaríkjunum um helgina. Zobel hefur unnið náið með leikstjóranum David Gordon Green og framleiddi meðal annars Prince Avalanche, sem er endurgerð á íslensku gamanmyndinni Á annan veg.

Framleiðslan á myndinni verður flókin og mörg fyrirtæki koma að verkefninu þar á meðal fyrirtæki Sigurjóns Sighvatssonar, Palomar Pictures. Þá kemur einnig leikstjórinn Gary Ross til með að framleiða myndina í gegnum fyrirtæki sitt Lucky Hat Entertainment. Ross leikstýrði síðast stórmyndinni The Hunger Games.

Z for Zachariah er sögð frá sjónarhorni Ann Burden, sextán ára gamalli stelpu, sem lifir af kjarnorkustríð í litlum bæ í Bandaríkjunum. Vegna þess hversu heimili hennar er afskekkt hefur geislavirknin ekki náð til hennar. Bókin, sem myndin byggir á, er skrifuð sem dagbók þar sem Ann skráir það sem á daga hennar drífur eftir kjarnorkuárásina.

Maguire kemur til með að fara með hlutverk vísindamanns sem Burden finnur og hjúkrar eftir að hann hefur orðið fyrir geislavirkni.

Handrit myndarinnar lenti á lista The Black List vestanhafs árið 2009 yfir bestu óframleiddu handrit ársins að mati einstaklinga innan kvikmyndaiðnaðarins.

Vignir Jón Vignisson

Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða