„Það fer ekkert á milli mála að Burton og Depp hafa viljað gefa uppáhalds þættinum sínum góð skil í kvikmynd en útkoman er því miður í samræmi við mistökin sem gerð eru í útfærslunni. Rétt eins og sjálfur Barnabas er Dark Shadows eins og fiskur á þurru landi.“
Nornin Angelique hneppir Barnabas Collins í álög eftir að hann hafnar ást hennar. Hún gerir honum þann óleik að breyta honum í vampíru og lætur grafa hann lifandi. Tveimur öldum síðar, árið 1972, finnst Barnabas og ætlar hann sér að reisa nafn nafn ættar sinnar til fornrar frægðar.
Dark Shadows er byggð á samnefndum sápuþáttum frá sjöunda áratugnum. Tim Burton og Johnny Depp hafa báðir talað opinberlega um dálæti sitt á þáttunum og sagt myndina vera óð til þeirra. Hugmyndin um vampíru sem reynir að laga sig að breyttum heimi er skemmtileg pæling samanborið við hugmynda- og blóðlausar vampírumyndir síðustu ára.
Útfærslan er þó nokkuð gölluð og engu líkara er en Burton hafi leikstýrt tveimur kvikmyndum og
fléttað þær síðan saman í eina. Önnur er drungaleg draugamynd en hin lauflétt gamanmynd sem gerist á sjötta áratugnum. Grafalvarlegt opnunaratriðið gefur tóninn fyrir myndina en að því loknu kemur runa af fyndnum og skemmtilegum atriðum og þannig gengur þetta koll af kolli í gegnum myndina.
Fyrsti hlutinn fer hægt og illa af stað en í seinni hlutanum nær myndin flugi og almennilegt flæði kemur í söguna. Lokakaflinn fellur síðan kylliflatur og lokauppgjörið er þvingað og úr öllum takti við það sem á undan er gengið.
Depp er líflaus en fyndinn í hlutverki vampírunnar Barnabas sem er eins og fiskur á þurru landi. Eva Green er hallærislega vond meðan Jackie Earle Haley og Chloë Grace Moretz tekst að moða eitthvað úr sínum takmörkuðu persónum. Gamla brýnið Alice Cooper kemur sterkur inn í litlu hlutverki og slær á létta strengi.
Það fer ekkert á milli mála að Burton og Depp hafa viljað gefa uppáhalds þættinum sínum góð skil í kvikmynd en útkoman er því miður í samræmi við mistökin sem gerð eru í útfærslunni. Rétt eins og sjálfur Barnabas er Dark Shadows eins og fiskur á þurru landi.
Leikstjóri: Tim Burton
Handrit: Seth Grahame-Smith og John August
Leikarar: Johnny Depp, Michelle Pfeiffer, Helena Bonham Carter, Eva Green, Jackie Earle Haley, Jonny Lee Miller, Bella Heathcote, Chloë Grace Moretz og Christopher Lee