Piranha 3DD

„Hver persónan er heimskari en sú næsta og jafn pappírsþunnar persónur hafa ekki sést í langan tíma. Þetta er eins og afbökuð klámmynd sem fer skrefinu lengra í blóði en í kynlífi og bullandi kvenfyrirlitning í nánast hverju atriði.“

Í bíó: Piranha 3DD (2012)

Pírana mannætufiskarnir vakna aftur til lífsins og það í stöðuvatni í grennd við sundlaugagarð. Til þess að toppa þetta ákveða eigendur sundlaugagarðsins að dæla vatni úr stöðuvatninu yfir í laugar sínar til þess spara pening. Og vitaskuld hefur slík níska einhverja fylgifiska. Heldur tannhvassa í þessu tilfelli.


Slagorðið á plakati Piranha 3DD, sem skartar brjóstgóðri konu, hljóðar svo: „Tvöfalt hættulegri. Tvöföld stærð“. Hér er því ekkert verið að skafa utan af hlutunum og frekar einfalt markmið aðstandenda myndarinnar blasir við: Stór brjóst, blóð, unglingar, vond samtöl og píranafiskar. Tókst þeim að ná markmiði sínu? Ójá. En þýðir það að myndin sé endilega góð? Ónei.
 

Handritshöfundarnir mega þó eiga það að myndin er svo absúrt asnaleg að sum atriðin verða þolanleg. Til dæmis má nefna upphafsatriði myndarinnar þar sem áhorfendum er sýnt á grafískan máta hvernig píranahrogn finna sér útleið um óæðri enda nautgrips. Gamla kempan Gary Busey leggur kveikjara að nautgripnum og í bland við viðrekstur verður þvílík sprenging. Busey, sem kallar ekki allt ömmu sína, ver sig gegn píranafiskunum með kjafti og klóm og það bókstaflega þar sem hann leggur sér einn til munns. Eitt eða tvö önnur slík atriði eru rétt boðleg en þá eru það upptalið.


Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að myndin er gerð í þeim tilgangi að vera vond en ólíkt fyrri myndinni sem var vond-góð en þessi er einfaldlega vond-vond. Og þar er ansi langt á milli. Öll atburðarás myndarinnar er skrifuð í kringum blautbolakeppnir, gálga- og ógeðshúmor. Samtölin eru svo hallærislega vond og illa skrifuð, þvinguð og tilgerðarleg að það mætti halda að einhverjir höfunda Guiding Light hafi hrist handritið fram úr erminni.


Hver persónan er heimskari en sú næsta og jafn pappírsþunnar persónur hafa ekki sést í langan tíma. Þetta er eins og afbökuð klámmynd sem fer skrefinu lengra í blóði en í kynlífi og bullandi kvenfyrirlitning í nánast hverju atriði.
 

Hvernig Christopher Lloyd eða Ving Rhames datt í hug að koma nálægt þessari hræðilegu mynd skil ég ekki. David Koechner leikur sömu persónuna í fertugasta skiptið og Katrina Bowden á þann vafasama heiður að hafa farið með verstu setningu myndarinnar: „Josh skar af sér typpið þar sem eitthvað kom út úr leggöngunum á mér“ !


Baðstandarvörðurinn þekkti David Hasselhoff (sem er orðinn álíka strekktur og Joan Rivers í framan) segir í litlu smáhlutverki „velkominn á botninn“ þegar hann opnar skemmtigarðinn. Mér fannst ég einmitt kominn þangað þegar ég sat undir Piranha 3DD.

Leikstjóri: John Gulager
Handrit: Patrick Melton, Marcus Dunstan, Joel Soisson
Leikarar: Danielle Panabaker, Matt Bush, David Koechner, Katrina Bowden, David Hasselhoff, Christopher Lloyd, Gary Busey og Ving Rhames


Svarthöfði 2011 - Allur réttur áskilinn | svarthofdi (hjá) svarthofdi.is | Um Svarthöfða